Sanddæluskipið Skandia, sem Íslenska gámafélagið hefur tekið á leigu til að dýpka Landeyjahöfn, fer í skoðun ytra í dag. Vegna athugasemda sem gerðar voru við skipið við skoðun í síðustu viku, gat það ekki lagt af stað til Íslands. Ef allt gegnur að óskum í dag ætti það að geta verið komið hingað í lok næstu viku.