Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi í Vestmannaeyjum styður Samtök atvinnulífsins í þeirri afstöðu að ganga ekki frá almennum kjarasamningum, áður en því verður komið á hreint hvaða breytingar verða gerðar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Bergur Páll Kristinsson, formaður félagsins, segir að skipstjórnarmenn víða um land íhugi að sigla skipum sínum í land, fáist ekki vissa um hvað ríkisstjórnin hyggst fyrir fljótlega: