Um 100 fermetra hluti af þaki Vinnslustöðvarinnar flettist upp í morgun en um er að ræða syðsta hluta hússins. Plöturnar fuku ekki af húsinu en fljótlega dreif að fólk til að fergja þær niður aftur. Björgunarfélag Vestmannaeyja var ræst út til aðstoðar en auk þeirra voru þarna smiðir sem voru að vinna í nálægum byggingum og starfsmenn Vinnslustöðvarinnar.