Björgunarfélag Vestmannaeyja var nú rétt í þessu kallað út en talsverður vindur er nú í Eyjum, 27 metra meðalvindur en hviður á Stórhöfða fara upp í 34 metra á sekúndu. Björgunarfélagið hefur verið kallað að húsakynnum Vinnslustöðvarinnar við Strandveg en samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglu eru þakplötur að fjúka af húsinu.