Eyjamenn tryggðu sér í dag áframhaldandi starfskrafta enska varnarmannsins Matt Garner. Garner hefur eingöngu leikið með ÍBV hér á landi, lék fyrst sumarið 2004 frá enska félaginu Crewe með liðinu og kom svo aftur til ÍBV sumarið 2006 og hefur leikið með liðinu síðan. Garner leikur öllu jöfnu í stöðu vinstri bakvarðar og þykir einn af þeim betri í þeirri stöðu á Íslandi. Alls hefur hann leikið 109 leiki fyrir ÍBV og skorað fjögur mörk en sumarið 2009 var hann fyrirliði ÍBV. Samningurinn gildir út tímabilið 2011.