Dæluskipið Skandia er lagt af stað áleiðis til Vestmannaeyja frá Danmörku. Skipið fór í skoðun í gær en ekki er gott siglingaveður framundan og því viðbúið að skipið verði lengur á leiðinni en áætlað var. Í góðu veðri er þetta um fjögurra sólahringa sigling. Hins vegar er áætlað að það taki aðeins tvo daga að dýpka og opna Landeyjahöfn fyrir Herjólf.