Knattspyrnukonan Kristín Erna Sigurlásdóttir skrifaði nú í hádeginu undir tveggja ára samning hjá ÍBV. Kristín Erna hefur leikið allan sinn feril hjá ÍBV en hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik sumarið 2007. Tölfræðin hjá henni er sannarlega glæsileg en Kristín Erna hefur spilað 52 leiki með ÍBV í Íslandsmótinu og bikarkeppninni og skorað 51 mark fyrir félagið.