Í gær sögðum við frá því að dæluskipið Skandia væri lagt af stað áleiðis til Íslands. Heldur var siglingin í styttra lagi því skipið lá sem fastast við bryggju í Assens í Danmörku. Hins vegar lagði skipið af stað í morgun, sólarhring seinna en áætlað var. Talsvert óveður er nú á siglingaleiðinni og má búast við að Skandia verið komið til landsins í fyrsta lagi á laugardag eða sunnudag.