„Já ég hugsa að þetta sé alveg áreið­anlega stysti bæjar­stjórnar­fundur í Vestmannaeyjum frá upphafi og jafnvel sá stysti sem haldinn hefur verið á landinu,“ sagði Elliði Vignisson um fund bæjarstjórnar sl. fimmtudag. Hann hófst klukkan 18.00 og var slitið fjórum mínútum síðar, klukkan 18.04.