Í morgun gerði lögreglan í Eyjum, húsleit á gistiheimili í bænum. Þar fundust um 30 grömm af maríhúana. Aðili sem var þar með herbergi á leigu var handtekinn og færður í fangageymslu. Hann verður yfirheyrður síðar í dag. Einnig fundust um 70.000.- kr. af peningum sem voru haldlagðir.