„Þetta er vorboði, heldur betur,“ sagði Sigurgeir Jónasson, ljósmyndari Morgunblaðsins og fuglaáhugamaður, í Vestmannaeyjum. Hann sá í gær að svartfuglinn var sestur upp í Ystakletti. Sigurgeir var búinn að fylgjast með fuglabælunum og í gær fylltust allir kórar og holur í Ystakletti.