Eins og greint var frá hér á Eyjafréttum í gærkvöldi, mun Gunnar Heiðar Þorvaldsson skrifa undir fjögurra ára samning við ÍBV á eftir. Gunnar Heiðar sagðist í samtali við Eyjafréttir í morgun ekki vera kominn til Eyja til að hætta. „Ég hef aldrei unnið titil með mínu liði á ferlinum. Vonandi get ég hjálpað ÍBV til að vinna titla næstu fjögur árin og uppfyllt þann draum hjá mér að vinna titil með mínu liði. Ég er ekki kominn heim til að hætta og hef ekki lokað á það að fara aftur út ef rétta tækifærið býðst,“ sagði Gunnar í viðtali sem má lesa hér að neðan.