Gunnar Heiðar Þorvaldsson semur í dag við sitt gamla uppeldisfélag eftir dvöl á erlendri grundu. Hann hefur leikið sem atvinnumaður undanfarin ár í Svíþjóð, Þýskalandi, Noregi, Englandi og Danmörku. Gunnar varð nýlega laus allra mála hjá Esbjerg í Danmörku og kemur því til ÍBV á frjálsri sölu.

Gunnar Heiðar semur við félagið til fjögura ára eða út tímabilið 2014. Hann er 28 ára gamall og á vonandi sín bestu ár eftir í fótboltanum.