Loðnuskipið Kap VE siglir nú áleiðis til Færeyja þar sem skipið mun landa um 1.200 tonnum af loðnu til bræðslu í Fuglafirði. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum hefur verið gripið til þessa ráðs vegna yfirvofandi verkfalls starfsmanna fiskimjölsverksmiðjanna.