Herjólfur mun ekki sigla í dag vegna veðurs. Fyrri ferð skipsins var aflýst í morgun og nú var að berast tilkynning um að síðari ferðinni yrði einnig aflýst. Farþegar sem ætluðu með skipinu í dag eru beðnir um að hafa samband við afgreiðslu skipsins í síma 481-2800.