Nú er snælduvitlaust veður í Vestmannaeyjum og hefur verið síðan í gærkvöldi. Á Stórhöfða hefur meðalvindhraði verið yfir 30 metra síðan klukkan ellefu í gærkvöldi en klukkan sex í morgun var meðalvindur 36 metrar á sekúndu en fór í 49 metra í mestu hviðunum. Fyrri ferð Herjólfs hefur verið aflýst og sömuleiðis skólahaldi í Grunnskóla Vestmannaeyja.