Í dag laugardag verður almennur félagsfundur VG í Vestmannaeyjum kl. 12.00 á Kaffi Kró. Steingrímur J Sigfússon formaður flokksins ætlar að mæta og ræða við félagsmenn. Almennur fundur verður haldinn á sama stað kl. 13.00. Fundurinn er opinn öllum þeim sem hafa áhuga á stöðunni í íslenskum stjórnmálum og ekki síst þeim krefjandi og áhugaverðu verkefnum sem framundan eru.