Körfuknattleikslið ÍBV átti að taka á móti Reyni frá Sandgerði á morgun klukkan 12:30 en leiknum hefur nú verið frestað um óákveðinn tíma. Reynismenn eru í öðru sæti B-riðils með 22 stig eftir 13 leiki á meðan ÍBV er í því þriðja með 18 stig eftir 10 leiki. Sigur myndi því koma sér vel fyrir Eyjamenn gegn Reyni.