ÍBV er komið í fjórða sæti N1 deildarinnar eftir sigur á FH í hörkuleik. Leikurinn fór fram í Eyjum þrátt fyrir að ekki hafi verið flugfært í dag en Hafnafjarðarliðið og dómarapar leiksins kom með Herjólfi í dag. Lokatölur urðu 24:22 en staðan í hálfleik var 9:10 FH í vil. Þótt ÍBV sé komið í fjórða sætið verður erfitt að halda sætinu því þegar fjórar umferðir eru eftir, á ÍBV eftir að leika gegn þremur efstu liðum deildarinnar.