Ester Óskarsdóttir var markahæst hjá ÍBV í sigurleiknum gegn FH í kvöld en hún skoraði níu mörk og var mjög ákveðin á lokakaflanum fyrir ÍBV. Hún sagði í samtali við Eyjafréttir að markmiðið hjá ÍBV í vetur væri enn að ná í fimmta sætið, þó svo að liðið sitji nú í því fjórða enda megi búast við erfiðum leikjum í síðustu þremur umferðunum. Næsti leikur sé gegn HK og með sigri þar geti ÍBV tryggt sér fimmta sætið.