Herjólfur mun ekki fara seinni ferð dagsins í dag, laugardag enda spáir stormi við suðurströndina. Skipið tafðist í fyrri ferð og er núna að sigla inn til hafnar í Vestmannaeyjum um þrjú leytið, um klukkustund á eftir áætlun.