Kvennalið ÍBV tekur á móti FH í dag klukkan 18:00 í íþróttamiðstöðinni. Eyjastúlkur hafa verið á mikilli siglingu undanfarið og hafa unnið síðustu fimm leiki sína en með sigri í kvöld, gæti liðið stokkið upp í fjórða sæti deildarinnar, svo lengi sem Valur vinnur Fylki, eins og flestir búast við. Fjögur efstu liðin fara í úrslitakeppni Íslandsmótsins en fimm umferðir eru eftir af deildarkeppninni.