Félagsfundur Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs í Vestmannaeyjum lýsir yfir fullum stuðningi við ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar. Fundurinn lýsir jafnframt yfir ánægju sinni með þann árangur sem náðst hefur á fjölmörgum sviðum þjóðmála við afar erfiðar aðstæður sem sýnir að ríkisstjórnin er á réttri leið. Þetta kemur fram í ályktun VG í Vestmannaeyjum sem má lesa hér að neðan.