Bergur Sigmundsson, bakari, er minnka við sig. Hann hefur í mörg ár rekið Vilberg-Kökuhús í Vestmannaeyjum en árið 2006 opnaði hann útibú á Selfossi sem hann hefur selt. „Já, það er rétt að við erum búin að selja Vilberg – Kökuhús á Selfossi sem við höfðum rekið frá árinu 2006. Reksturinn gekk ágæt­lega en eins og hjá svo mörg­um voru skuldirnar of miklar. Þegar við opnuðum upp frá voru allar innréttingar og vélar og tæki fjármagnað með erlendum lánum að stærstum hluta,“ sagði Bergur sem undanfarið hefur leitað leiða til að laga fjárhagsstöðuna.