Heimsreisa Sighvatar Bjarnasonar heldur áfram en hann er nú staddur í Malaví í Afríku, á leið norður heimsálfuna áður en hann fer yfir til Asíu. Rútuferðirnar virðast vera æði sérstakar þarna suður frá. „Ferðin frá Harare í Zimbabwe til Blantyre í Malawi tók því 17 tíma, og af þeim var sami gospell diskurinn spilaður í tíu tíma stanslaust,“ segir Sighvatur á facebook síðu ferðarinnar.