ÍBV hafnaði tilboði úrvalsdeildarliðs Örebro í Svíþjóð í varnarmanninn sterka Eiður Aron Sigurbjörnsson. Eiður sem nýlega var valinn besti varnarmaður Pepsídeildarinnar af álitsgjöfum fotbolti.net hefur spilað mjög vel síðastliðin ár og verið einn af burðarásum liðsins. Eiður var í vetur valinn í futsal landslið Íslands og U-21 hóp okkar íslendinga. Eiður sem enn er gjaldgengur í U-21 árs liðið á svo sannarlega framtíðina fyrir sér í boltanum.