Íslandsbanki mun yfirtaka eignir Fasteignar sem ekki tilheyra sveitarfélögunum sem standa að félginu. Leigueign Arion banka hf. í Borg­arnesi kann þó að verða undanskilin við yfirtökuna. Íslandsbanki mun jafnframt yfirtaka hluta af rekstrarláni félagsins, sem nemur samtals um einum milljarði í hlutfalli við virkan eignarhlut bankans í Fasteign eftir útgöngu Álftaness og Garða­bæjar úr félaginu.