Í gær mældi Siglingastofnun dýpi við Landeyjahöfn en niðurstöður mælinganna liggja fyrir. Samkvæmt því sem segir á vef Siglingastofnunnar, www.sigling.is er dýpi nægjanlegt fyrir ferju sem er sambærileg Baldri að stærð og djúpristu. Reynt er að auka dýpið við höfnina en haustlægðir gera dæluskipinu Skandia erfitt fyrir.