„Íbúar í Vestmannaeyjum lýsa eftir þingmönnum kjördæmisins. Lítið er vitað um ferðir þeirra síðan í aðdraganda síðustu þingkosninga. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir þeirra eru beðnir að hafa samband við íbúa Vestmannaeyja.“ Svona hljómar heilsíðu auglýsing í Morgunblaðinu í dag en undir auglýsinguna kvitta Áhugafólk um bættar samgöngur við Vestmannaeyjar.