Herjólfur hefur siglt til Þorlákshafnar frá því 8. nóvember og hefur verið gefið út að ekki verði fært í Landeyjahöfn út mánuðinn a.m.k. Samkvæmt mælingu á föstudaginn eru horfur ekki góðar því mikið af sandi hefur safnast fyrir framan og á milli garðanna. Fer dýpið upp á 3,1 metra við austurgarðinn en er í kringum 3,5 metra á þessu svæði. Nægt dýpi er í höfninni og framan við sandbinginn.