Þriðjudaginn 24. janúar kl. 08.04
Hermann Hreiðarsson:

Frábær byrjun

Frábær byrjun
„Þetta var frábær byrjun hjá mér en það er mikil áskorun fyrir okkur að halda sætinu í deildinni. Við þurfum að byggja ofan á þennan sigur og komast á gott skrið svo sjálfstraustið eflist í liðinu,“ segir Hermann Hreiðarsson á vef Coventry en Hermann lék sinn fyrsta leik með liðinu um nýliðna helgi þegar það hafði betur á móti Middlesbrough, 3:1, á heimavelli.

Þrátt fyrir sigurinn situr Coventry enn á botni B-deildarinnar en liðið er sjö stigum frá öruggu sæti í deildinni.
 
„Þetta var frábær sigur fyrir okkur og hann var ákaflega þýðingarmikill upp á framhaldið,“ segir Hermann, sem mun leika með Coventry-liðinu út leiktíðina.
 
Hermann og félagar eiga frí um næstu helgi en þá verður leikið í bikarnum þar sem Coventry er úr leik. Í næstu viku sækir Coventry lið Blackpool heim í deildinni.
 
www.mbl.is 
 

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Jón Atli Gunnarsson, skipstjóri á Ísleifi VE
Þórsteina eftir sigur á HK.
Svavar Knútur í Grunnskólanum.
Guðbjörg eftir sigur á FH.
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn