„Ég var ákveðinn í að gera mitt þegar ég fékk tækifærið og er því sáttur við minn leik þótt það hefði gert hann ennþá skemmtilegri ef við hefðum unnið,“ sagði Kári Kristján Kristjánsson, línumaður íslenska landsliðsins, sem átti góða innkomu í leikinn við Spánverja í gær. Kári skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum og vann fjögur vítaköst.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Miðvikudaginn 25. janúar kl. 08.16
Mbl.is:
Kári greip tækifærið
„Ég hafði alveg í fullu tré við Spánverjana, þeir áttu erfitt með mig og ég nýtti mér það,“ sagði Kári.
„Spánverjar eru hins vegar með hörkulið eins og við vissum. Þeir hafa getað dreift álaginu mikið alla keppnina enda með tvo frábæra leikmenn í hverri stöðu. Við gerðum okkar besta en vantaði fleiri menn og það var skarð fyrir skildi að Alexander Petersson gat ekki spilað með okkur að þessu sinni. Stefnan var auðvitað að vinna leikinn en lengra komumst við ekki,“ sagði Kári sem lék í rúmar 20 mínútur í leiknum, aðallega í sókninni, og hefur aldrei leikið stærra hlutverk í kappleik í þessu móti.
www.mbl.is greindi frá.








