Fimmtudaginn 26. janúar kl. 11.26

Þrjár frá ÍBV á æfingu með A-landsliðinu

- Tvær á æfingar U-19 ára landsliðsins.

Þrjár frá ÍBV á æfingu með A-landsliðinu Berglind Björg Þorvaldsdóttir. Mynd: Hafliði Breiðfjörð/Fótbolti.net
Þær Elísa Viðarsdóttir, Berglind Þorvaldsdóttir og Elínborg Ingvarsdóttir hafa allar verið valdar til að taka þátt á landsliðsæfingum A-landsliðsins í knattspyrnu.  Berglind hefur verið viðloðandi landsliðið undanfarin ár og Elínborg fór með liðinu á La Manga mótið fyrir tveimur árum.  Elísa er hins vegar í fyrsta sinn kölluð á æfingar A-landsliðsins en þar hittir hún væntanlega fyrir systir sína, Margréti Láru.

Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu ÍBV, www.ibvsport.is en þar er jafnframt sagt frá því að þær Svava Tara Ólafsdóttir og Sigríður Lára Garðarsdóttir hafi verið valdar í æfingahóp U-19 ára landsliðsins en liðið mun fara með A-landsliðinu til La manga í byrjun mars.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Jón Atli Gunnarsson, skipstjóri á Ísleifi VE
Þórsteina eftir sigur á HK.
Svavar Knútur í Grunnskólanum.
Guðbjörg eftir sigur á FH.
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn