Eyjamenn fá góðan liðsstyrk í dag þegar enski miðjumaðurinn George Baldock gengur í raðir Eyjaliðsins. Baldock þessi kemur frá enska C-deildarliðinu MK Dons en leikmaðurinn er varnartengiliður og 19 ára gamall. Hann hefur leikið þrjá leiki fyrir MK Dons á þessu tímabili en verið í láni hjá Northampton Town og Tamworth.