Á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í gær, var fjallað um stefnu frá Kaupþing hf á hendur Vestmannaeyjabæ frá 27. júní síðastliðnum. Í henni er þess annarsvegar krafist að rift verði greiðslu Kaupþings hf. til Vetmannaeyjabæjar frá 8. september 2008, að fjárhæð kr. 1.013.229.250, og hinsvegar er þess krafist að Vestmannaeyjabær greiði Kaupþingi hf. þessa sömu fjárhæð til baka með stoð lög um gjaldþrotaskipti.