Farþegar Herjólfs hafa undanfarið haft samband við ritstjórn Eyjafrétta en þeir telja að Herjólfur hafi farið utan í annan af tveimur hafnargörðum Landeyjahafnar. Gunnlaugur Grettisson, rekstrarstjóri Herjólfs í Vestmannaeyjum staðfesti að eitthvert óhapp hefði orðið í Landeyjahöfn en skipið er nú á leið til Eyja samkvæmt áætlun.