Leikur karlaliða ÍBV í handbolta, ÍBV og B-liðsins í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar, verður föstudaginn 21. desember næstkomandi. B-liðið undirbýr sig nú af krafti fyrir leikinn, eða allavega eins miklum krafti og býr í þessum uppgjafarleikmönnum. Þó leynast þarna inn á milli öflugir peyjar, eins og knattspyrnumennirnir Hermann Hreiðarsson, Þórarinn Ingi Valdimarsson og fiskverkandinn Daði Pálsson, sem er af einhverjum örfáum talinn öflugasti peyinn í hópnum. Æfingahópinn má sjá hér að neðan en hann verður skorinn niður 10. desember næstkomandi.