Lítil hætta var á ferðum þegar Þórunn Sveinsdóttir VE fékk á sig um 30 gráðu slagsíðu þegar verið var að hífa trollin úr festu í tals­verðri brælu á miðunum út Vestfjörðum. Þetta gerðist mjög snöggt og fór mannskapurinn í flotgalla í varúðarskyni. Atvikið átti sér stað í síðasta túr.