Það eru mikil umskipti hjá Grími Gíslasyni frá því að reka veisluþjónustu í kjallaranum heima hjá sér og að vera kominn í 1000 fermetra húsnæði við Hlíðarveginn þar sem framleidd eru þrjú til fjögur tonn af tilbúnum fiskréttum á dag og aðstaða fyrir fiskvinnslu. Nú eru réttir frá Grími kokk seldir um allt land en áfram skal haldið og sér Grímur ótal tækifæri framundan. Nýtt húsnæði opni þeim nýja möguleika og framtíðin sé björt.