Tugmilljóna tjón varð á togskipinu Bylgju VE þegar gámaskipið Tetuan sigldi utan í skipið um áttaleytið í morgun. Samkvæmt upplýsingum sem fengust á skrifstofu Vestmannaeyjahafnar, klikkaði skiptingin í gámaskipinu með þessum afleiðingum en gámaskipið rakst einnig utan í bryggjuþil en þar urðu litlar skemmdir.