Staða Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja hefur aldrei verið verri en nú. Rekstrarféð er á þrotum þegar enn eru níu mánuðir eftir af ­rekstrarárinu. Í síðustu viku átti Margrét Júlíusdóttir að mæta í lyfja­gjöf á Heilbrigðisstofnunina en henni var vísað frá, þar sem ekki var hægt að leysa lyfið út.