Franska skútan Étoile, eða Stjarnan kom við í Eyjum í vikunni. Skútan heimsækir í ferð sinni til Íslands þrjá staði þar sem reistir hafa verið franskir spítalar, Vestmannaeyjar, Reykjavík og Fáskrúðsfjörð. Spítalinn sem reistur var í Vestmannaeyjum er í dag íbúðarhús og stendur við Kirkjuveg 20 og gengur daglega undir nafninu Gamli spítalinn eða Gamló, eins og skilti á húsinu segir til um.