Enn á ný þarf að leiðrétta markaskorara úr leik ÍBV og Selfoss. Upphaflega var sagt frá því að Shaneka Gordon hefði skorað sigurmarkið en síðar kom í ljós að dómari leiksins hafði skráð markið á hina ungu og efnilegu Guðrúnu Báru Magnúsdóttur. Hið rétta er hins vegar að það var Shaneka sem skoraði sigurmarkið.