Tveir Eyjamenn eru í landsliðshópi Íslands í knattspyrnu sem mætir Slóveníu á Laugardalsvelli 7. júní næstkomandi. Þetta eru þeir Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Þórarinn Ingi Valdimarsson. Gunnar Heiðar, sem á 23 leiki að baki með landsliðinu og hefur byrjað mjög vel í sænsku úrvalsdeildinni. Þórarinn Ingi á aðeins einn leik að baki með landsliðinu en hann er jafnframt yngsti leikmaðurinn í landsliðshópnum, ásamt sóknarmanninum Kolbeini Sigþórssyni.