Önnur ferð Herjólfs fellur niður í dag. Ölduhæð í Landeyjahöfn var 2,5 metrar klukkan tíu í morgun og vindur 20 til 25 metrar á sekúndu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip. Athuga á með þriðju ferð skipsins klukkan 13:30 en áætlað er að sigla frá Eyjum 14:30 og frá Landeyjahöfn 16:00.