Þrjár myndlistarkonur, þær Guðmunda Kristinsdóttir, Lilja Bragadóttir og Rannveig Tryggvadóttir, opna síðdegis í dag, fimmtudag málverkasýningu í sal Akóges. Opnun sýningarinnar er klukkan 18:00 en á sýningunni verður að finna verk eftir þær þrjár og verður sýningin opin alla helgina.