Karlmaður á sextugsaldri er alvarlega slasaður eftir fall í Brandi, einni af úteyjum Vestmannaeyja. Maðurinn var á leið niður úr eynni þegar hann missti fótanna og féll niður, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum. Maðurinn var fluttur í land með gúmmíbáti Ribsafari, þar sem björgunarbáturinn Þór er á þurru landi. Flytja á manninn með sjúkraflugi til Reykjavíkur.