Á starfsmannafundi á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja (HSVE) eftir hádegi var tilkynnt að skurðstofunni yrði lokað frá og með 1. október nk. Gunnar Kr. Gunnarsson, framkvæmdastjóri tilkynnti þetta á fundinum og sagði að þeim væri nauðugur einn kostur, að skera niður í rekstrinum. Þetta verður m.a. til þess að fæðingar í Vestmannaeyjum munu að mestu heyra sögunni til.