Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Um Fjölsýn
Rekstraraðili:
Eyjasýn ehf.
Strandvegi 47, 900 Vestmannaeyjum
Sími 481 1300 - Fax 481 1293
Netfang frettir@eyjafrettir.is
Tæknistjóri:
Sími 481 1300 - Fax 481 1293
Netfang frettir@eyjafrettir.is
Tæknistjóri:
Jón Árni Ólafsson
Saga Fjölsýnar
Það var 21. janúar 1993, að eftirfarandi tillaga frá Guðmundi Þ. B. Ólafssyni var samþykkt í Bæjarstjórn Vestmannaeyja:
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkir að fela stjórn Bæjarveitna, að kanna hvaða möguleikar væru til staðar á dreifingu sjónvarpsefnis um Heimaey, þá meðal annars frá gervihnöttum í gegnum jarðstöð.
Í framhaldi af þessari samþykkt hófst mikil undirbúningsvinna, sem að mestu var í höndum Eiríks Bogasonar, þáverandi veitustjóra. Eftir þá vinnu var stofnað sérstakt undirbúningsfélags og var stofnfundurinn 8. maí 1993. Í stjórn þess félags voru kosnir: Bjarni Sighvatsson, Davíð Guðmundsson, Eiríkur Bogason, Guðmundur Þ.B. Ólafsson, Guðjón Hjörleifsson, Smári Guðsteinsson og Þorsteinn Gunnarsson. Meðal þess sem þetta félag lét gera, var skoðanakönnun meðal bæjarbúa um vilja til þátttöku í örbylgjuendurvarpsstöð. Var könnunin unnin af IM Gallup og niðurstaðan var mjög jákvæð. Hófst þá hlutafjársöfnun og undirbúningur að stofnun hlutafélags um væntanlegan rekstur. Stofnfundur félagsins sem hlaut nafnið Fjölsýn var 26. nóvember 1994. Í stjórnina voru kosnir: Jón Árni Ólafsson, Sigmar Gíslason, Gísli Valtýsson og Ómar Guðmundsson, Davíð Guðmundsson og Jóhann Pétursson. Hluthafar voru 26 talsins og hlutafé 7 milljónir króna. Stærstu hluthafarnir voru Siglingatæki hf., Sigmar Gíslason, Elnet hf. og Eyjaprent hf..
Stjórnin hófst þegar handa um kaup á búnaði, útvegun margskonar leyfa og samninga við erlendar sjónvarpstöðvar um útsendingu þeirra í gegnum örbylgjukerfi Fjölsýnar. Húsnæði undir tækjabúnað var tekið á leigu að Illuagötu 62. Um miðjan ágúst 1995 hófst svo fyrsta útsendingin og það var Guðjón Hjörleifsson þáverandi bæjarstjóri sem kveikti á stöðinni. Upphaflega voru sent út á 6 rásum, 5 voru undir endurvarp erlendra stöðva og ein undir það efni sem starfsfólk Fjölsýnar framleiddi sjálft. Var það í byrjun fremur fátæklegt og bar með meiri vilja en mátt. Áskrifendur voru um 150 talsins fyrstu árin og reksturinn afar þungur. Öll störf sem unnin voru við stöðina voru af einskærum áhuga og engar launagreiðslur inntar af hendi. Mest mæddi störfin á Jóni Árna Ólafssyni sem í krafti tækniþekkingar sinnar og áhuga varð sjálfskipaður sjónvarpsstjóri. Árið 1996 fór Fjölsýn í samstarf við Stöð 3, var efni þeirrar sjónvarpstöðvar sýnt á einni rás Fjölsýnar og einnig tóku Stöðvar 3 menn aðsér að taka upp alla útileiki knattspyrnuliðs ÍBV og voru þeir allir sýndir á Fjölsýn það árið.
Þar kom að Jóni Árna Ólafssyni þótti kominn tími til að minnka á sér ábyrgðina og störfin og gerði það að tillögu sinni að reynt yrði að sameina Fjölsýn og fjölmiðlafyrirtæki Eyjaprent ehf. Eftir stuttar viðræður milli aðila var ákveðið að fyrirtækin yrðu sameinuð. Um áramótin 2000-2001 runnu þau saman í eitt undir nafninu Eyjasýn ehf. Útsendingarrásum var fjölgað í 10 og vestmannaeysk dagskrárgerð aukin. Í dag er eitt og hálft stöðugildi við Fjölsýn. Fréttir af mannlífi Vestmannaeyja er orðin fastur dagskrárliður einu sinni í viku, umræðuþættir reglulega, margvíslegar upptökur ýmist beinar eða eftiráunnar eftir því sem tilefni gefast og allir handboltaleikir ÍBV á útivelli sýndir. Stefnt er að frekari aukningu á framleiðslu eigins efnis og mun það líta dagsins ljós í fyllingu tímans.


.jpg&newxsize=140&newysize=93&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)





